21.12.01 40 ár í starfi
hjá RalaÞann 19. des s.l. hélt Rannsóknastofnun landbúnaðarins kveðjusamsæti fyrir tvo af starfsmönnum stofnunarinnar sem láta af störfum nú um áramótin. Stefán Sch. Thorsteinsson tilraunastjóri að Hesti lætur af störfum eftir 40 ára starf hjá stofnuninni og Ingi Garðar Sigurðsson fyrrverandi tilraunastjóri að Reykhólum lætur að störfum eftir 37 ára starf hjá stofnuninni. Báðir hafa þeir unnið mikið og gott starf í þágu íslensks landbúnaðar og má sjá á löngun starfsaldri þeirra hjá stofnuninni að hún er byggð upp af samheldnum, og traustum vísindamönnum sem láta hag íslensk landbúnaðar sig öllu skipta.
09.12.01 Tilkynning til kornbænda! Rannsóknastofnun
landbúnaðarins og Landssamband kornbænda bjóða bændum sáðkorn af íslenska bygginu
Súlu vorið 2002. Landssamband kornbænda hefur umsjón með ræktuninni eins og fyrri
ár. 05.12.01 Gagnagrunnur
í hrossarækt Næsta fræðsluerindi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
verður haldið á morgun fimmtudaginn 6. des. kl. 10 f.h Ágúst
Sigurðsson í Kirkjubæ mun í erindi sínu fjalla um 28.11.01
Ný grein um
jarðveg auðna á Íslandi.
Í greininni er bent á hve íslenskur jarðvegur auðna er
sérstakur á heimsvísu. Þessi jarðvegur
ber öll einkenni eldfjallajarðar (Andisol), enda þótt hann teljist ungur og lítið
þróaður. Nú er að koma í ljós að á
Íslandi er að finna >5% eldfjallajarðvegs á jörðinni. 26.11.01 Komdu og skoðaðu........ Í dag var kynntur nýr vefur á vegum Námsgagnastofnunar. Þessi vefur, sem er hluti námsefninu Komdu og skoðaðu, er unninn í samvinnu við níu rannsóknastofnanir og styrktur af Rannís. Stofnanirnar eru Hafrannsóknastofnunin, Iðntæknistofnun, Náttúrufræðistofnun,Orkustofnun, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Veðurstofa Íslands og Veiðimálastofnun.Sjá nánar hér ... Hollustan reiknuð á Netinu Nú geta allir, sem hafa aðgang að Netinu, reiknað næringarefnin í matnum sem þeir borða og metið hollustu eigin fæðis. Matarvefurinn.is opnar nýja möguleika jafnt fyrir fyrir almenning og skólafólk að fylgjast með hollustu eigin mataræðis og fræðast um næringargildi fæðunnar. Vefurinn kemur sér einnig vel fyrir sykursjúka, íþróttafólk og aðra sem þurfa af einhverjum ástæðum að fylgjast vel með mataræðinu. Eins getur starfsfólk í matvælaiðnaði nýtt sér vefinn. Sjá nánar hér..... Fjórða aðalráðstefna Samtaka um landbúnað á Norðurslóðum (CAA) Aðalráðstefna Samtaka um landbúnað á Norðurslóðum (Circumpolar Agricultural Association: CAA), var haldin 27.-29. ágúst 2001 á Akureyri á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, og fleiri aðila innan nýstofnaðrar Íslandsdeildar CAA. Ráðstefnan á Akureyri bar heitið Legacy and Vision in Northern Agriculture og var ætlað að beina athygli að samspili sögu og menningar við undirstöðu landbúnaðarins og þeim möguleikum til sóknar á nýrri öld sem í því felst. Sjá nánar á vefsíðu ráðstefnunar http:www.svs.is/caa/2001/ Aþjóðleg fiskeldiráðstefna haldin á Íslandi. - 16. ágúst var haldin ráðstefna á vegum COST 827 verkefnis Evrópusambandsins um áhrif umhverfis, samkeppni, fóðrunartækni, lífeðlisfræði og efnasamsetningar fóðurs á át fiska. Ráðstefnan er haldinn í Odda í Háskóla Íslands og stóðu Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Háskóli Íslands og Hólaskóli að skipulagi hennar. 09.08.01 09.07.01 Kornrækt á nýrri öld. Ráðstefna í Skagafirði 8. júní 2001: Erindi frá ráðstefnunni er að finna hér. 28.06.01 100 ára afmæli samfelldra jarðræktarrannsókna á Íslandi. Þann 21. júní s.l. var þess minnst að 100 ár eru liðin frá því að samfelldar tilraunir í jarðrækt hófust hér á landi. Alþingi veitti fé til Gróðrarstöðvarinnar í Reykjavík 1900-1901 og vorið 1901 var þar sáð í tilraunareiti undir handleiðslu Einars Helgasonar. Stöðin var rekin af Búnaðarfélagi Íslands. Varð þetta upphaf samfelldrar tilraunastarfsemi í jarðrækt sem síðan hefur verið sinnt víða um land, fyrst á vegum Búnaðarfélags Íslands og fleiri aðila. Seinna varð til Tilraunaráð jarðræktar sem sameinaðist Atvinnudeild Háskólans er Rannsóknastofnun landbúnaðarins var stofnuð 1965.Sjá myndir hér..... 12.06.01 Fulltrúar Landsstjórnar Færeyja heimsækja RALA. Bjarni Djurholm, landbúnaðarráðherra Færeyja heimsótti RALA 7. júní ásamt Arne Poulsen frá færeysku landsstjórninni. Sjá frétt... 02.06.2001
01.06.2001
14.05.2001
|
Eldri fréttir er að finna hér... Fræðsluerindi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
|