Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Um vefinn
Votlendisnefnd
Fréttir
Mikilvægi votlendis
Hnignun votlendis
Endurheimt
Endurheimt svæði
Vöktun og rannsóknir
Myndasafn
Styrkir
Tenglar
Útgáfa
Póstlistinn

 

 

 

Tökum þátt í endurheimt votlendis

Ljósmynd: Borgþór Magnússon

Votlendi setur mikinn svip á íslenska náttúru og myndar samofið net frá fjörum og leirum upp um ósa, ár og vötn til mýra og flóa.

Votlendi er mikilvægt búsvæði fugla, smádýra og plantna, og fjölmargar tegundir byggja tilvist sína á því.  Margvísleg ferli eiga sér stað í votlendi, svo sem vatnsmiðlun, mómyndun og uppsöfnun sets.  Sökum þessara ferla hefur óraskað votlendi mikið gildi sem samofin eining í landinu, sérstaklega hvað varðar vatns- og efnabúskap stærri landslagseininga.

Á síðari hluta þessarar aldar hefur votlendi hér á landi tekið miklum breytingum vegna framræslu og ræktunar mýra.  Framræsla mýra hefur verið búskap í mýrlendum sveitum lyftistöng og styrkt stoðir landbúnaðarframleiðslu í landinu.  Nú er svo komið að á láglendi hafa mýrar víðast hvar verið ræstar fram og lítið er eftir af ósnortnu votlendi.

Frá árinu 1996 hefur verið starfandi á vegum landbúnaðarráðuneytisins nefnd um endurheimt votlendis.  Haustið 1996 var í fyrsta sinn farið út í endurheimt votlendis á vegum nefndarinnar er gömlum uppgreftri með skurðbökkum var ýtt ofan í skurði í Hestmýri í Borgarfirði. 

 


Ó1999 Ritstjórn - Nefnd um endurheimt votlendis


Síðast breytt 14.02.2006