Mat á ástandi lands

 

Þegar meta á land skal velja stað sem er dæmigerður fyrir hagann. Skali og myndir skulu höfð til hliðsjónar þegar horft er yfir landið og reynt að finna samsvörun við flokkunina. Gott er að hafa eyðublað við hönd, meta hvert einkenni fyrir sig og merkja við þann flokk sem best á við og meta út frá því heildarástand hagans. Sé úrbóta þörf er næst að íhuga í hverju þær gætu falist.

Á þessu eyðublaði er sýnt tilbúið dæmi um mat á ástandi þessa haga (sjá mynd) og niðurstöður þess.

Framræst mýrlendi. Hér er land allt mikið bitið og puntur vart sjáanlegur. Sina er lítil sem engin og rofdílar eru nokkuð áberandi. Þúfur eru áberandi og rofnar.

 

   

Síðast uppfært 01.08.2000
joi@rala.is

 

1997 ©

http://www.rala.is/umhvd/hhagar/