Ástandsflokkun lands

Um þessa flokkun

Flokkur

Ástand

Einkenni

Aðgerðir

0

Ágætt

Rofdílar eru nær engir (0–2% þekja).
Þúfur eru vart merkjanlegar.
Lítil eða engin ummerki beitar,
(svarðhæð ~20–50 cm).
Land er loðið.
Sina er mikil í sverði.
Uppskera er mikil (gróðurnýting < 10%).
 

1

Gott

Rofdílar eru hverfandi litlir (< 5% þekja).
Þúfur eru vart merkjanlegar.
Gróður er rjóðurbitinn og toppóttur,
(svarðhæð minnst 15 cm).
Puntur er áberandi að hausti.
Sina er talsverð í sverði.
Uppskera er talsvert mikil (gróðurnýting < 40%).
Engar sérstakar

2

Sæmilegt

Rofdílar eru hverfandi litlir (< 5% þekja).
Þúfur eru nokkuð áberandi.
Gróður er jafnbitinn,
(svarðhæð ~ 10–20 cm).
Puntur er nokkur að hausti.
Sina sést í sverði.
Uppskera er nokkur (gróðurnýting 40–60%).
Aðgátar þörf, t.d. í köldum árum.

3

Slæmt

Rofdílar eru merkjanlegir (~5–10% þekja).
Þúfur eru áberandi.
Gróður er snöggur og jafnbitinn,
(svarðhæð ~ 5–15 cm).
Puntur er lítill að hausti.
Land er nær sinulaust.
Uppskera er lítil (gróðurnýting 60–80%).
Dregið úr beit.

Áburðargjöf

4

Mjög slæmt

Rofdílar eru nokkuð áberandi (~10% þekja).
Þúfur eru mjög áberandi.
Gróður er mikið bitinn,
(svarðhæð < 10 cm).
Puntur er lítill sem enginn að hausti.
Land er sinulaust.
Uppskera er lítil sem engin (gróðurnýting > 80%).
Friðun.

Dregið verulega úr beit.

Áburðargjöf.

5

Land óhæft til beitar

Rofdílar eru mjög áberandi (> 10% þekja).
Þúfur eru mjög áberandi.
Gróður er allur rótnagaður
(svarðhæð ~ 5 cm).
Puntur sést ekki að hausti
Land er sinulaust.
Uppskera er lítil sem engin (gróðurnýting > 80%).
Friðun.

Uppgræðsla þar sem við á.

Síðast uppfært 01.08.2000
joi@rala.is

1997 ©

http://www.rala.is/umhvd/hhagar/