ROF
TENGT GRÓÐURLENDI OG AUÐNUM
Unnt er að nota gagnagrunnin til gera nokkurn greinarmun á því rofi
sem einkum tengist gróðurlendi og rofi á auðnum (mynd). Slíkt hefur hagnýtt gildi,
þar sem nú er einkum lögð áhersla á að stöðva það rof sem veldur hraðfara
gróðureyðingu.
Með gróðurlendi er bæði átt við slitrótt gróðurlendi eins og hálfgróin
rofabarðasvæði, sem og samfellt gróðurlendi. Í þeim flokki er tekið saman það
rof sem veldur tapi á frjóum jarðvegi sem fullur er af lífi og næringu, en á
auðnunum er jarðvegur ófrjór. Þessir flokkar skarast á stórum svæðum þar sem
bæði er kortlagt rof tengt gróðurlendi og rof á auðnum.
Eins og sést á myndinni er langstærsti hluti þess lands sem fær
rofeinkunnir 4 og 5 auðnasvæði. Þó ber að hafa það í huga að mörg sandsvæði
eru í raun brautir sands á leið hans í átt til gróðurlenda, svokallaðar
sandleiðir. Slíkar sandauðnir tengjast vissu-lega rofi á gróðurlendi.
Heildarútbreiðsla rofs sem tengist gróðurlendi og rofi á auðnum, er svipuð. Hins
vegar fær rof á auðnum að meðaltali hærri rofeinkunn, þ.e. alvarlegt rof á auðnum
er algengara en alvarlegt rof sem tengist gróðurlendi.
Mikið rof (rofeinkunnir 4 og 5) er á aðeins tæplega 2000 km2 lands sem telst gróið samkvæmt gróðurmynd (LMÍ 1993, sjá kafla
7.3). Rofeinkunn 3 er á 1208 km2 sem teljast
grónir. Í 6. töflu eru niðurstöður gróðurmyndar bornar saman við
kortlagn-ingu á jarðvegsrofi. Í töflunni kemur m.a. fram að alvarlegt rof
(rofeinkunnir 3, 4 og 5) á sér stað á um 2400 km2 lands sem telst vel gróið samkvæmt gróðurmynd en alls er vel gróið land
14 245 km2. Eins og vænta má er hlutfall
svæða þar sem alvarlegt rof á sér stað hærra eftir því sem þau eru rýrari
samkvæmt gróðurmyndinni.
| Rof tengt
gróðurlendi og rof tengt auðnum (km2 og %). |
| |
-
- - - - - - - - - - - - - - - Rofeinkunnir - - - - - - - - - - - - - |
|
| Rof |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
Alls |
| |
-
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - km2 - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - |
| Rof tengt gróðurlendi1 |
10095 |
30649 |
11649 |
1556 |
383 |
53712 |
| Rof tengt auðnum2 |
10225 |
10903 |
15928 |
9971 |
6007 |
53035 |
| |
|
| |
-
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - % - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - |
| Rof tengt gróðurlendi |
19 |
57 |
20 |
3 |
1 |
100 |
| Rof tengt auðnum |
19 |
21 |
30 |
19 |
11 |
100 |
| Hraun eru
undanskilin. |
| 1: rofmyndir A, B,
J, D, K, V. |
| 2: rofmyndir S, M,
SM, SH, O, C, H. |

Uppfært 13 May, 2002 af EG
©Höfundaréttur Ólafur Arnalds, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landgræðsla
ríkisins |