Jarðvegsrof á Íslandi

| Áfoksgeirar | Rofabörð | Rofdílar | Jarðsil | Skriður,vatnsrásir og urðir | Melar | Hraun | Sandar og sendin svæði | HRAUN

Við kortlagningu á rofi eru aðeins þau hraun sem eru ógróin og laus við sand talin til hrauna. Yfirleitt er þá um að ræða ung hraun þar sem jarðvegsmyndun og landnám gróðurs er stutt á veg komin.

Hraun sem eru að mestu laus við sand eða lítt gróin eru ekki mikil að víðáttu, eða um 2000 km2. Til samanburðar má geta þess að sendin hraun þekja um 4900 km2. Þessar tölur gefa ekki raunhæfa mynd af heildarflatarmáli hrauna á landinu því þar sem jarðvegur og gróður þekja yfirborðið eru þau ekki talin til hrauna þegar rof er metið.

Sjá töflur
Skipting landsins eftir rofmyndum og rofeinkunnum1 (tölur í km2)
Hlutfallsleg skipting landsins eftir rofeinkunn og rofmynd innan hverrar rofeinkunnar (%)1

á síðu um EINSTAKAR ROFMYNDIR, HEILDARYFIRLIT

Rof tengt gróðurlendi og rof tengt auðnum (km2 og %).
á síðu um
ROF TENGT GRÓÐURLENDI OG AUÐNUM

Myndir Myndir

Uppfært 13 May 2002 af EG
©Höfundaréttur Ólafur Arnalds, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landgræðsla ríkisins