|
Einfölduð mynd af breytingum á gróðurþekju (græn lína) og gróðurfari sem geta orðið við langvarandi ofbeit. I-VI stendur fyrir stig er lýsa mismunandi ástandi. Meðan gróðurhulan er óskert og jarðvegseyðing lítil (II. og III. stig) er tiltölulega auðvelt og ódýrt (rauð lína) að koma gróðri aftur á I. stig ef beit er minnkuð eða henni aflétt. Þar sem mestöll jarðvegshulan hefur tapast (V. og VI. stig) er hins vegar mun erfiðara og kostnaðarsamara að koma gróðrinum á I. stig aftur því endurheimta þarf jarðvegsauðlindina ef það er á annað borð gerlegt. Teikn. Á.L.A., Ó.A. og S.A./J.B.P.
Uppfært 13 May 2002 af EG |